Nú fer að styttast í það að þessi kríli fari að flytja á ný heimili

Það er sko eftir að verða mikill söknuður hérna hjá mér og krökkunum, veit nú ekki með Magga þar sem hann er orðinn þreyttur á öllum látunum

hehehe
En annars þá eru þessi skott byrjuð að fara út að skoða sig um á pallinum og kíkja aðeins á snjóinn.
Nú ætla ég að setja smá upplýsingar um hvolpana sem þeir sem eru ekki búnir að velja væru örugglega til í að vita.
Rauða tíkin: Er fyrsta tíkin sem kom í gotinu og hún er sko alfa tík, hún er álíka í stærð og rakkarnir og lætur ekki segja sér til. Hún er frek og algert bully. Hún er sko langt í frá að vera fyrir byrjendur í schafer hundum.Ég held að hún verði í síðhærðari kanntinum. En ég get ekkert sagt til um það svosem.
Gula tíkin: Er tík nr 2, hún eltir á sér nefið og skoðar sig mikið um, hún er kjörkuð og lætur ekkert á sig fá. Hún er nú ekki mikið í slagsmálunum en lætur samt til sín koma og tekur í þá sem eru að bögga hana. Ég er eiginlega viss um það að hún verði snögghærð þar sem feldurinn á henni er mikið styttri en á öllum hinu,.
Fjólubláa tíkin: er tík nr 3, hún er soldið lík gulu tíkinni, en er meira í að leika og láta eins og bjáni. Hún er líka kjörkuð en eltir ekki næstum eins mikið á sér nefið eins og gula tíkin. Feldurinn á henni get ég engann veginn giskað um.
Rauða kisuóla tíkin: er tík nr.4 sem kom og er viðurnefnið hennar Píslið, þar sem hún er töluvert minni en allir hinir. Hún leikur sér mikið en er mest ein með sjálfri sér. Hún er ekki fyrir slagsmálin en lætur nú samt í sér heyra ef hún vill fá sitt klapp ef hinir eru að fá smá knús. Hún er nokkurnveginn byrjuð að þekkja viðurnefnið sitt Píslið.
Rakkinn með gráu og svörtu ólina: er rakki nr.1 í gotinu og höldum við honum hann er sannkallaður alfa dog í rakka hópnum og tekur í alla nema Píslið. Hann er alveg eins og ég vill hafa hann.
Blái rakkinn: er nr 2 af þeim, hann er kallaður Hulkinn enda stærstur og feitastur. Honum finnst ekkert nema gott að borða og svo náttúrulega sofa og leika inná milli. Feldurinn á honum er já....hef ekki hugmynd. En Hulkinn er frátekinn.
Svarti rakkinn: er nr 3, hann er ekkert nema yndi en samt með algera stæla og djöflagang.
Ég á eiginlega ekki orð til að lýsa honum. Feldurinn á honum, er já mikill en samt ekki miðað við suma. Þessi rakki er frátekinn líka.
Græni rakkinn: er nr 4. hann er minnstur af rökkunum en gefur engum eftir, hann er alger grallari og tekur uppá ýmsum hlutum. Hann er einnig algert kúrudýr og er alltaf til í að liggja í fanginu hjá manni til að fá sitt knús og klapp. Ég er nokkuð viss um að hann haldi að hann sé kjölturakki eins og mamma sín. Ég veit ekkert hvernig feldurinn á honum verður.
Jæja þá er það komið í grófum dráttum hvernig þeir eru núna.
Ég læt þetta vera gott í bili.
kv Birgitta